Gjöld
Umsóknargjöld eru ekki endurgreidd.
Ekki er tekið við greiðslum með kreditkortum.
Einkaleyfastofan innheimtir gjöld samkvæmt ákvæðum reglugerðar sem settar eru á grundvelli laga um hugverkaréttindi á sviði iðnaðar og önnur hliðstæð þjónustugjöld. Núgildandi gjaldskrá er samkvæmt reglugerð um gjöld fyrir einkaleyfi, vörumerki, hönnun o.fl. nr. 818/2016, með síðari breytingum sem tók gildi þann 1. janúar 2017. Við gerð reikninga og greiðsluseðla notast Einkaleyfastofan við innheimtukerfi ríkisins, TBR.
Viðvörun um falsaðar greiðslubeiðnir
Einkaleyfastofunni hafa borist ábendingar um að íslenskum umsækjendum hafi borist erindi frá erlendum aðilum þar sem óskað er eftir greiðslu fyrir birtingu vörumerkja í erlendum gagnagrunnum. Einkaleyfastofan hefur enga tengingu við þessa aðila og biður viðskiptavini sína um að greiða ekki umbeðin gjöld berist þeim svona erindi þar sem tilgangur þeirra virðist eingöngu vera sá að blekkja umsækjendur.
Gjaldskrá
Gjöld fyrir umsókn um skráningu vörumerkis eða endurnýjun: | Krónur |
Umsóknar- eða endurnýjunargjald, einn vöru- eða þjónustuflokkur innifalinn: | 32.200 |
Viðbótargjald fyrir hvern vöru- og/eða þjónustuflokk umfram einn: | 6.900 |
Gjald fyrir hverja mynd umfram eina í umsókn þegar merkið er í þrívídd: | 3.500 |
Gjöld fyrir tilnefningu á Íslandi í umsókn um alþjóðlega skráningu merkja eða vegna endurnýjunar þeirra eru greidd til Alþjóðahugverkastofnunarinnar (WIPO). | |
Ýmis gjöld vegna vörumerkja: | |
Umsýslugjald fyrir móttöku og meðhöndlun alþjóðlegrar vörumerkjaumsóknar: | 17.300 |
Beiðni um breytingu á skráðu merki: | 6.900 |
Beiðni um hlutun umsóknar eða skráningar: | 20.700 |
Tilkynning um andmæli eða krafa um að skráning merkis verði felld úr gildi: | 41.400 |
Gjald fyrir beiðni um endurupptöku: | 11.000 |
Gjald fyrir beiðni um innfærslu upplýsinga um aðilaskipti, nytjaleyfi eða veðsetningu: | 6.900 |
Gjald fyrir beiðni um aðrar innfærslur í málaskrá, s.s. breyting á nafni eða heimilisfangi umsækjanda eða breytingar varðandi umboðsmann: | 3.500 |
Rafrænt afrit af umsókn eða af skráðu merki eða öðrum skjölum úr skjalavistunarkerfi: | 1.200 |
Staðfest afrit af skjölum skv. 6. tl. eða útgáfa forgangsréttarskjals: | 4.600 |
Útprentun eða ljósritun gagna, hver síða í stærðinni A4: | 200 |
Leit í vörumerkjaskrá að sambærilegu merki: | 5.800 |
Fyrir þjónustu, sem verður ekki heimfærð undir einingarverð reglugerðarinnar, svo sem umfangsmikla leit, athuganir, úrvinnslu eða tölvuútskriftir, greiðist tímagjald: | 6.900 |
Byggðarmerki
Samkvæmt reglugerð um skráningu byggðarmerkja nr. 112/1999 skal með umsókn um skráningu byggðarmerkis fylgja gjald, kr. 40.000,-. Hafi gjald ekki verið greitt innan eins mánaðar frá umsóknardegi fellur umsóknin úr gildi.