Skráð vörumerki - upplýsingar

Hagnýtar upplýsingar fyrir eigendur vörumerkjaskráninga

 

Einkaleyfastofan bendir á mikilvægi þess að hafa eftirtalin atriði í huga:

Verndartími vörumerkis

Leiði umsókn um skráningu vörumerkis til skráningar þess öðlast merkið vernd frá dagsetningu umsóknar.

 

Andmælaréttur

Þegar skráning merkis hefur verið auglýst í ELS-tíðindum hefur hver sá, sem telur sig eiga hagsmuna að gæta, rétt samkvæmt 22. gr. vörumerkjalaga nr. 45/1997, til þess að leggja fram andmæli við skráningu vörumerkis. Einkaleyfastofan tilkynnir eiganda skráningar um fram komin andmæli um leið og þau berast. Báðum aðilum málsins er gefið færi á að leggja fram greinargerð og gögn áður en ákvörðun er tekin um hvort skráning heldur gildi sínu eða ekki.

 

Réttur til áfrýjunar

Niðurstöðu Einkaleyfastofunnar í andmælamálum er samkvæmt 1. mgr. 63. gr. vörumerkjalaga, unnt að áfrýja til áfrýjunarnefndar hugverkaréttinda á sviði iðnaðar innan tveggja mánaða frá ákvörðun stofnunarinnar eða innan þriggja mánaða frá dagsetningu ákvörðunar til dómstóla, sbr. 3. mgr. 63. gr. laganna.

 

Gildistími skráningar

Komi andmæli ekki fram eða leiði þau ekki til niðurfellingar á skráningu gildir skráning merkisins á Íslandi í 10 ár í senn frá skráningardegi samkvæmt 26. gr. vörumerkjalaga. Að 10 árum liðnum þarf beiðni um endurnýjun merkisins að berast Einkaleyfastofunni eigi merkið að gilda til lengri tíma. Unnt er að óska eftir endurnýjun merkis í eitt ár, þ.e. í sex mánuði fyrir og í sex mánuði eftir að skráningartímabili lýkur, samkvæmt 27. gr. laganna.

 

Skráningarskírteini

Mikilvægt er að halda skráningarskírteini vel til haga þar sem það staðfestir eignarétt yfir skráðu vörumerki. Ávallt er þó unnt að nálgast upplýsingar um skráð merki í vörumerkjaskrá.

 

Notkun vörumerkis

Hér á landi er ekki skylt að sýna skráningaryfirvöldum fram á notkun merkisins. Hafa verður þó í huga að samkvæmt 25. gr. vörumerkjalaga getur sá sem telur sig eiga hagsmuna að gæta farið fram á ógildingu merkis fyrir dómi ef:

  • merki hefur ekki verið notað að fimm árum liðnum frá skráningardegi, eða
  • ef eigandi merkis hefur ekki notað það í fimm ár samfleytt.

 

Mikilvægt er að halda til haga öllum gögnum um notkun merkisins og upplýsingum um dagsetningu notkunar, s.s. birtingu auglýsinga, útgáfu bæklinga, reikninga og annars sem staðfest getur notkun merkisins með óyggjandi hætti.

 

Eigendaskipti/breytt heimilisfang eiganda

Mikilvægt er að vörumerkjaskrá sýni réttar upplýsingar um eiganda vörumerkis. Skipti vörumerkið um eiganda er nauðsynlegt að leggja fram gögn því til staðfestingar til Einkaleyfastofunnar, s.s. framsal, gögn um samruna eða önnur gögn. Breyti eigandi um heimilisfang er nauðsynlegt að senda tilkynningu þar um stofnunarinnar.


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica