Að sækja um skráningu vörumerkis

 

Umsókn um skráningu vörumerkis skal leggja inn hjá Einkaleyfastofunni. Umsóknareyðublaðið má nálgast á vefsíðunni eða á skrifstofu stofnunarinnar.

  • Fyrir hvert vörumerki þarf að fylla út sérstaka umsókn.
  • Færa skal inn eiganda merkisins, kennitölu, heimilisfang og símanúmer.
  • Ef eigandi merkisins er ekki búsettur hér á landi þarf hann að tilnefna umboðsmann sinn sem búsettur skal vera á Íslandi. Undirritað umboð verður að liggja fyrir. Umboðsmaðurinn getur þá undirritað umsóknina í nafni eiganda.
  • Mikilvægt er að merkið sé skráð fyrir þær vörur og/eða þjónustu sem það á að notast fyrir. Flokkarnir eru samtals 45, 34 vöruflokkar og 11 fyrir þjónustu. Yfirskrift flokkanna gefur víðtækustu verndina. Einn vöru- og/eða þjónustuflokkur er innifalinn í umsóknargjaldi en fyrir hvern flokk umfram einn þarf að greiða sérstaklega.
  • Ef um myndmerki er að ræða skal myndin fylgja umsókninni, ekki stærri en 8 x 8 cm. Ef óskað er skráningar í lit skal myndin vera í lit. Til hagræðis er umsækjendum bent á að senda myndirnar rafrænt á jpg formi á netfangið postur@els.is. Áríðandi er að myndirnar séu skýrar, í réttum litum og bakgrunnurinn hreinn. Heimilt er að leggja inn myndir í þrívídd gegn greiðslu tilskilins gjalds.

 

Ef skráningu er synjað sendir Einkaleyfastofan umsækjanda tilkynningu um það bréflega og honum er gefinn frestur til að gera athugasemdir við niðurstöðuna.

Ef engir formgallar eru á umsókninni og Einkaleyfastofan gerir engar athugasemdir við skráningarhæfi merkisins, má gera ráð fyrir að skráningarferlið taki nálægt tveimur mánuðum.

Þegar merkið hefur verið skráð er það birt á heimasíðu Einkaleyfastofunnar í ELS-tíðindum. Blaðið kemur út 15. hvers mánaðar.

 

Í tvo mánuði frá birtingardegi skrásetts vörumerki getur hver sem er andmælt skráningunni. Andmælin skulu send Einkaleyfastofunni bréflega og rökstudd.

Ef vörumerki er andmælt er eigandanum gefinn kostur á að koma fram með rök fyrir skráningunni. Þegar báðir aðilar hafa tjáð sig um málið tekur Einkaleyfastofan málið til úrskurðar. Málsaðilar geta svo borið ákvörðun Einkaleyfastofunnar undir Áfrýjunarnefnd hugverkaréttinda á sviði iðnaðar og/eða höfðað mál fyrir dómstólum.


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica