Flokkun vörumerkja

 

 Vöru- og þjónustuflokkar skulu flokkaðir skv. Nice-flokkunarkerfinu. Yfirskrift flokkanna er sem hér segir:

I. Vörur

Flokkur 1. Efni til að nota í iðnaði, við vísindastörf, ljósmyndun sem og í landbúnaði, garðrækt og skógrækt; óunnin gervikvoða, óunnar plastvörur; áburður; slökkviefni; efnablöndur til herslu og lóðunar; efni til varðveislu á matvælum; sútunarefni; lím- og bindiefni til iðnaðarnota.

Flokkur 2. Málning, gljákvoða (fernis), lakk; ryðvarnarefni og fúavarnarefni; litarefni; litfestir; óunnin náttúruleg kvoða; málmþynnur og málmduft fyrir málara, skreytingamenn, prentara og listamenn.

Flokkur 3. Bleikiefni og önnur efni til nota við fataþvott, ræstingu, fægingu, hreinsun og slípun; sápur; ilmvörur, ilmolíur, snyrtivörur, hárvötn; tannhirðuvörur.

Flokkur 4. Olíur og feiti til iðnaðar; smurolíur; raka- og rykbindiefni; brennsluefni (þar með talið eldsneyti fyrir hreyfla) og ljósmeti; kerti og kveikir til lýsingar.

Flokkur 5. Lyfjablöndur fyrir menn og blöndur til dýralækninga; efnablöndur til hreinlætisnota í læknis-fræðilegum tilgangi; sérfæði og næringarefni fyrir menn og dýr, barnamatur; fæðubótarefni fyrir menn og dýr; plástrar, sárabindi; tannfyllingarefni, vax til tannsmíða; sótthreinsiefni; efni til að eyða meindýrum, sveppum og illgresi.

Flokkur 6. Ódýrir málmar og blöndur úr þeim; byggingarefni úr málmi, færanlegar byggingar úr málmi; málmefni í járnbrautarspor; strengir og vírar úr ódýrum málmum, ekki til rafmagnsnota; járnvörur og smáhlutir úr málmi; pípur og hólkar úr málmi; öryggisskápar; vörur úr ódýrum málmum sem ekki heyra undir aðra flokka; málmgrýti.

Flokkur 7. Vélar og smíðavélar; hreyflar og vélar (þó ekki í landfarartæki); vélatengsli og drifbúnaður (þó ekki í landfarartæki); landbúnaðarvélar sem ekki eru handknúnar; klakvélar (útungunarvélar); sjálfsalar.

Flokkur 8. Handverkfæri og handknúin tól; eggjárn og hnífapör; höggvopn og lagvopn; rakvélar.

Flokkur 9. Búnaður og tæki notuð við vísindi, siglingar, landmælingar, ljósmyndun, kvikmyndatöku og -sýningar; sjóntæki, vogir, mælingatæki, merkjasendingatæki, eftirlitstæki, björgunartæki, kennslu-tæki og -búnaður; búnaður og tæki til að leiða, kveikja og slökkva á, breyta, safna, stilla eða stjórna rafmagni; tæki sem notuð eru til að taka upp, flytja eða fjölfalda hljóð eða mynd; segulgagnaberar, upptökudiskar; geisladiskar, stafrænir mynddiskar og annar stafrænn upptökubúnaður; vélbúnaður fyrir myntstýrð tæki; búðarkassar, reiknivélar, gagnavinnslubúnaður og tölvur; tölvuhugbúnaður; slökkvitæki.

Flokkur 10. Tæki og búnaður til skurðlækninga, lyflækninga, tannlækninga og dýralækninga, gervilimir, -augu og -tennur; hlutir til bæklunarlækninga; þráður til að sauma saman sár.

Flokkur 11. Tæki og búnaður fyrir lýsingu, hitun, gufuframleiðslu, matseld, kælingu, þurrkun, loftræstingu, vatns- og hreinlætislagnir.

Flokkur 12. Farartæki; tæki til flutninga á landi, í lofti eða á legi.

Flokkur 13. Skotvopn; skotfæri og skot; sprengiefni; flugeldar.

Flokkur 14. Góðmálmar og blöndur úr þeim, svo og vörur úr góðmálmum eða húðaðar með þeim sem ekki heyra undir aðra flokka; skartgripir, gimsteinar; klukkur og tæki til tímamælinga.

Flokkur 15. Hljóðfæri. 

Flokkur 16. Pappír, pappi og vörur úr þessum efnum sem ekki eru taldar í öðrum flokkum; prentað mál; bókbandsefni; ljósmyndir; ritföng; bréflím og lím til heimilisnota; vörur handa listamönnum; málningarpenslar; ritvélar og skrifstofutæki (þó ekki húsgögn); fræðslu- og kennslugögn (þó ekki tæki); plastefni til pökkunar (sem ekki eru talin í öðrum flokkum); leturstafir; myndmót.

Flokkur 17. Gúmmí, togleður (gúttaperka), gúmkvoða, asbest, gljásteinn og vörur úr þessum efnum sem ekki eru taldar í öðrum flokkum; hálfunnið þanið plast til iðnaðarnota; efni til hvers konar þéttingar eða einangrunar; sveigjanlegar pípur sem ekki eru úr málmi.

Flokkur 18. Leður og leðurlíki og vörur gerðar úr þessum efnum sem ekki eru taldar í öðrum flokkum; skinn og húðir; ferðakoffort og ferðatöskur; regnhlífar og sólhlífar; göngustafir; svipur, aktygi og reiðtygi.

Flokkur 19. Byggingarefni (ekki úr málmi); ósveigjanlegar pípur í byggingar, ekki úr málmi; asfalt, bik og malbik; færanlegar byggingar, ekki úr málmi; minnisvarðar, ekki úr málmi.

Flokkur 20. Húsgögn, speglar, myndarammar; vörur (ekki taldar í öðrum flokkum) úr tré, korki, reyr, spanskreyr, tágum, horni, beini, fílabeini, hvalbeini, skel, rafi, perlumóður, sæfrauði, svo og úr efnum sem geta komið í stað þessara, eða úr plasti.

Flokkur 21. Heimilis- eða eldhúsáhöld og ílát; greiður og þvottasvampar; burstar (nema málningarpenslar); efni til burstagerðar; hlutir sem notaðir eru til ræstingar; stálull; óunnið eða hálfunnið gler (þó ekki gler notað við byggingar); glervörur, postulín og leirvörur, ekki taldar í öðrum flokkum.

Flokkur 22. Kaðlar, seglgarn, net, tjöld, segldúkur, yfirbreiðslur, segl, pokar og skjóður (ekki taldar í öðrum flokkum); bólstrunarefni og tróð (nema úr gúmmíi eða plasti); óunnin efni úr þræði til vefnaðar.

Flokkur 23. Garn og þráður til vefnaðar.

Flokkur 24. Vefnaður og vefnaðarvörur sem ekki eru taldar í öðrum flokkum; rúmteppi; borðdúkar.

Flokkur 25. Fatnaður, skófatnaður, höfuðfatnaður.

Flokkur 26. Blúndur og útsaumur, borðar og kögur; hnappar og tölur, krókar og lykkjur, prjónar og nálar; gerviblóm.

Flokkur 27. Teppi, mottur, gólfdúkar og annað efni til að leggja á gólf; veggklæðning (þó ekki ofin).

Flokkur 28. Leikspil og leikföng; leikfimi- og íþróttavörur sem ekki eru taldar í öðrum flokkum; jólatrésskraut.

Flokkur 29. Kjöt, fiskur, alifuglar og villibráð; kjötkraftur; niðursoðnir, frosnir, þurrkaðir og soðnir ávextir og grænmeti; ávaxtahlaup, -sultur og -grautar; egg; mjólk og mjólkurafurðir; matarolíur og matarfeiti.

Flokkur 30. Kaffi, te, kakó og gervikaffi; hrísgrjón; tapíókamjöl og sagógrjón; mjöl og matvörur úr korni; brauð, sætabrauð og sælgæti; ís til matar; sykur, hunang, síróp; ger, lyftiduft; salt; sinnep; edik, sósur (bragðbætandi); krydd; ís.

Flokkur 31. Korn og landbúnaðar-, garðræktar- og skógræktarafurðir sem ekki eru taldar í öðrum flokkum; lifandi dýr; nýir ávextir og grænmeti; fræ, lifandi plöntur og blóm; dýrafóður; malt.

Flokkur 32. Bjór; ölkelduvatn, gosdrykkir og aðrir óáfengir drykkir; ávaxtadrykkir og ávaxtasafar; þykkni og önnur efni til drykkjargerðar.

Flokkur 33. Áfengir drykkir (nema bjór).

Flokkur 34. Tóbak; hlutir fyrir reykingamenn; eldspýtur.




II. Þjónusta

Flokkur 35  Auglýsingastarfsemi; rekstur og stjórnun fyrirtækja; skrifstofustarfsemi.

Flokkur 36  Tryggingastarfsemi; fjármálastarfsemi; gjaldmiðlaviðskipti; fasteignaviðskipti.

Flokkur 37  Byggingastarfsemi; viðgerðir; uppsetninga- og lagnaþjónusta.

Flokkur 38  Fjarskipti.

Flokkur 39   Flutningar; pökkun og geymsla vöru; ferðaþjónusta. 

Flokkur 40   Vinnsla og meðferð efna og hluta.

Flokkur 41    Fræðsla; þjálfun; skemmtistarfsemi; íþrótta- og menningarstarfsemi.

Flokkur 42   Vísinda- og tækniþjónusta og rannsóknir og hönnun í tengslum við það; rannsóknar- og greiningarþjónusta á sviði iðnaðar; hönnun og þróun tölvubúnaðar og tölvuhugbúnaðar.

Flokkur 43  Veitingaþjónusta; tímabundin gistiþjónusta.

Flokkur 44  Læknisþjónusta; dýralæknisþjónusta; fegrunar- og snyrtiþjónusta fyrir menn og dýr; þjónusta við landbúnað, garðyrkju og skógrækt.

Flokkur 45  Lögfræðiþjónusta; öryggisþjónusta til verndar einstaklingum og eignum; persónu- og félagsleg þjónusta í þágu einstaklinga.

 




Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica