OHIM - Vörumerkja- og hönnunarskrifstofa Evrópusambandsins
Unnt er að fá skráð vörumerki eða hönnun í Evrópusambandinu í heild í stað þess að leggja inn sjálfstæðar umsóknir í hverju aðildarríki þess fyrir sig. Umsókn um svokölluð Evrópuvörumerki (Community Trade Mark-CTM) og Evrópuhönnun (Registered Community Design-RCD) er beint til Vörumerkja-og hönnunarskrifstofu Evrópusambandsins (Office for Harmonization in the Internal Market- skst. OHIM) sem sér um þessar skráningar.
OHIM er sjálfstæð opinber stofnun og starfar á grundvelli reglugerða nr. (EB) 207/2009 frá 26. febrúar 2009 um Evrópuvörumerki og nr. (EB) 6/2002 frá 12. desember 2001 um Evrópuhönnun.
Með CTM- og RCD-skráningum fæst vernd í öllum 27 aðildarríkjum sambandsins og njóta þessar skráningar sömu verndar eins og landsbundnar skráningar í aðildarríkjunum. Þá er Evrópusambandið aðili að Madrid-skráningarkerfinu í vörumerkjum og Haag-skráningarkerfinu hvað varðar hönnun, þannig að hægt er að tilnefna sambandið í umsókn um alþjóðlega skráningu vörumerkis eða hönnunar. Sé Evrópusambandið tilnefnt er það OHIM sem fer með alla meðferð umsóknarinnar.
Höfuðstöðvar OHIM eru í Alicante á Spáni.
Heimasíða OHIM er http://oami.europa.eu/
