Eigandi skráðs vörumerkis getur endurnýjað skráningu vörumerkis síns á 10 ára fresti. Umsókn um endurnýjun má leggja inn 6 mánuðum fyrir og allt að 6 mánuðum eftir skráningardagsetningu. Sé það ekki gert fellur skráningin úr gildi, sbr. 3. mgr. 27. gr.vörumerkjalaga nr. 45/1997.
Hér má finna umsóknareyðublað fyrir endurnýjun. Umsókn má senda í pósti og er þá reikningur sendur á eiganda. Greiða þarf endurnýjunargjald/grunngjald og flokkagjald fyrir hvern flokk umfram 1.
Ef breytingar hafa orðið á eiganda vörumerkis, t.d. breyting á nafni eða eigandinn hefur sameinast öðrum, þarf að leggja fram gögn því til staðfestingar (vottorð frá Fyrirtækjaskrá.) Ef vörumerki hefur verið selt, skal leggja fram afrit af kaupsamningi eða framsalsskjal í frumriti.
Breytingar varðandi eiganda eru færðar í vörumerkjaskrá um leið og merki er endurnýjað. Fyrir það er ekki tekið sérstakt gjald.
