Samkvæmt 22. gr. vml., nr. 45/1997 er heimilt að andmæla skráningu vörumerkis eftir birtingu í ELS-tíðundum. Andmælum ber að skila skriflega, í tvíriti, til Einkaleyfastofunnar innan tveggja mánaða frá birtingardegi.
Eftirfarandi upplýsingar eiga að koma fram í andmælum:
1. nafn andmælanda og heimilisfang ásamt nafni umboðsmanns (ef á við);
2. númer þeirrar skráningar sem andmælt er og númer á tölublaði því sem skráningin var birt í;
3. helstu rök fyrir kröfu um ógildingu skráningar.
Einkaleyfastofan tilkynnir eiganda skráningar um framkomin andmæli um leið og þau berast. Báðum aðilum er gefið færi á að leggja fram athugasemdir/gögn til stuðnings máli sínu.
Þegar báðir aðilar hafa fengið tækifæri til að tjá sig athugar Einkaleyfastofan að nýju hvort skráningin haldi gildi sínu eða ekki (í samræmi við ákvæði 19. gr).
Frekari upplýsingar um andmæli er hægt að nálgast hjá starfsmönnum Einkaleyfastofunnar.
