Alþjóðleg skráning vörumerkja

 

Ef markaðssetning er fyrirhuguð erlendis, er mikilvægt að skrá merkið einnig í öðrum löndum en á Íslandi.

Vörumerki sem skráð eru hjá Einkaleyfastofunni er einungis vernduð á Íslandi. Alþjóðlega umsókn verður þó að byggja á landsbundinni umsókn sem síðar verður skráð, eða skráningu hér á landi. Umsækjandi verður því að leggja inn umsókn um skráningu hér á landi, hjá Einkaleyfastofunni, áður eða um leið og alþjóðleg umsókn er lögð inn. Merkið verður að vera eins í báðum tilvikum og vöru- og þjónustulistinn má ekki vera víðtækari er fram kemur í landsbundnu umsókninni.

Í umsókn um alþjóðlega skráningu þarf að koma fram í hvaða ríkjum skráningar er óskað. Hægt er að vernda merkið í öllum aðildarríkjum Madrid-bókunarinnar. Aðildarríkin eru nú vel yfir 70 að tölu, þ.á m. Evrópusambandið, Kína og Bandaríkin.  Greitt er tiltekið gjald fyrir hvert tilnefnt land, en ákvörðun un skráningarhæfi umsóknarinnar er tekin í hverju landi fyrir sig.

Umsóknin þarf að vera á ensku og á sérstöku eyðublaði sem nálgast má á heimasíðu Alþjóðahugverkastofnunarinnar (WIPO).  Ef Bandaríkin eru tilnefnd í umsókn um alþjóðlega skráningu vörumerkis þar að fylla út sérstakt eyðublað sem finna má hér.

Umsýslugjald greiðist til Einkaleyfastofunnar í samræmi við gjaldskrá, en önnur gjöld vegna umsóknarinnar greiðast beint til WIPO. Á heimasíðu WIPO er að finna reiknivél, þar sem hægt er að reikna út tilskilin gjöld .

Borið hefur á því að eigendur alþjóðlegra skráninga hafi fengið send bréf frá erlendum samtökum og stofnunum þar sem þeim er boðið að skrá merki sín í, að því er virðist, opinberum tíðindum gegn greiðslu. Einkaleyfastofan vekur athygli á því að slík birting hefur engin lagaleg áhrif á vernd merkjanna og er því óþörf. Gjöld vegna alþjóðlegra skráninga greiðast eingöngu til WIPO. Frekari upplýsingar um falskar rukkanir má finna hér.

Umsækjandi getur notfært sér forgangsrétt við innlagningu alþjóðlegu umsóknarinnar, svo framarlega að landsbundna umsóknin sé ekki eldri en sex mánaða. Alþjóðlega umsóknin telst þá fram komin samtímis umsókn merkisins hér á landi.

Alþjóðleg skráning gildir í 10 ár. Að þeim tíma liðnum er hægt að endurnýja skráninguna til 10 ára í senn, eins oft og eigandi þess óskar.




Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica