Hvað er vörumerki?
Vörumerki eru notuð til þess að merkja vörur og þjónustu. Þau eru hvers kyns sýnileg tákn sem notuð eru í atvinnustarfsemi til að greina vörur og þjónustu eins aðila frá vörum og þjónustu annarra. Þá eru vörumerki oft notuð sem firmaheiti og lén. Með vörumerkjaskráningu hjá Einkaleyfastofunni má, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, vernda auðkenni vöru og þjónustu, þ.e. vörumerki, til 10 ára í senn og með reglulegri endurnýjun vörumerkisins eins lengi og eigandi merkisins óskar.
Réttur sá sem settur er í vörumerkjalögum (sjá lög um vörumerki nr. 45/1997 með síðari breytingum) gefur eiganda vörumerkis einkarétt á að nota merkið hér á landi og getur hann þá bannað öðrum að nota í atvinnustarfsemi merki sem eru eins eða lík vörumerki hans. Þá er mikilvægt að hafa merki skráð ef verja þarf það fyrir ágangi annarra. Skráning á orðmerki hjá Einkaleyfastofunni er eina skráningin á auðkenni sem veitir einkarétt á orði, með þeim fyrirvara að sá einkaréttur nái eingöngu til þeirrar tilteknu vöru og/eða þjónustu sem merkinu er ætlað að auðkenna.
Hér er að finna almennar upplýsingar um vörumerki.
Til þess að skoða bæklinginn þarf forritið Acrobat Reader frá Adobe sem hægt er að fá á heimasíðu Adobe.
