Að sækja um skráningu félagamerkis
Félagamerki er hægt að skrá hjá Einkaleyfastofunni. Sama eyðublað er fyrir skráningu á vörumerki og félagamerki, en tilgreina verður sérstaklega á eyðublaðinu að óskað sé skráningar á félagamerki. Þau merki sem skráð eru í vörumerkjaskrá verða að uppfylla sömu skilyrði og vörumerki fyrir skráningu. Að auki verða reglur er gilda um notkun merkisins að fylgja með umsókn. Í reglunum skal m.a. koma fram:
- Hverjum sé heimilt að nota merkið og hvaða skilyrði séu fyrir slíkri heimild.
- Hvaða afleiðingar óréttmæt notkun merkisins hefur í för með sér.
- Hvaða réttindi og skyldur eigandi merkisins hefur gagnvart þeim sem notar merkið á óheimilan hátt.
