Hvað er félagamerki?
Með skráningu félagamerkis geta félög eða samtök öðlast einkarétt fyrir félagsmenn sína til að nota í atvinnustarfsemi sameiginlegt auðkenni fyrir vörur eða þjónustu. Félagamerki gegna sambærilegu hlutverki og vörumerki. Þau eru sérstök auðkenni félaga eða samtaka. Um notkun félagamerkis gilda sérstakar reglur þess félags sem um ræðir og samkvæmt þeim er félagsmönnum veittur réttur til notkunar merkis í atvinnustarfsemi. Félagamerki eru þ.a.l. sameiginlegt auðkenni fyrir vörur og/eða þjónustu. Sömu kröfur eru gerðar til þeirra og vörumerkja um sérkenni og aðgreiningarhæfi.
Stjórnvöld, stofnanir, félög eða samtök geta jafnframt öðlast einkarétt á merki sem notað er fyrir vörur eða þjónustu sem eftirlit eða staðlar taka til.
