Hvað er byggðarmerki?
Byggðarmerki eru auðkenni sveitarfélaga.
Byggðarmerki þurfa að uppfylla nokkuð nákvæmar reglur um útlit sem byggðar eru á meginreglum skjaldarmerkjafræðanna.
Byggðarmerki er ekki unnt að skrá ef það hefur að geyma án heimildar þjóðfána, ríkistákn, opinber alþjóðamerki, skjaldarmerki, opinber skoðunar- eða gæðamerki, opinbera stimpla, skráð vörumerki, skráð félaga- eða gæðamerki, heiti á atvinnustarfsemi eða annað sem til þess er fallið að villst verði á því og framangreindum merkjum.
Ákvörðun um skráningu er tekin af Einkaleyfastofunni á grundvelli umsagnar frá faglegum ráðgjafa eða ráðgjöfum.
Ef byggðarmerki fullnægir þeim skilyrðum sem gerð eru til þess er það skráð og birt í ELS-tíðindum.
Með skráningu byggðarmerkis fær sveitarfélagið einkarétt á að nota merkið.
Hér er að finna almennar upplýsingar um byggðarmerki.
Til þess að skoða bæklinginn þarf forritið Acrobat Reader frá Adobe sem hægt er að fá á heimasíðu Adobe.
Sé smellt á myndina opnast skjalið sem þá er hægt að prenta út.
