Auðkenni vöru, þjónustu, félaga eða sveitarfélaga
Mikilvægt er að vernda auðkenni vöru og þjónustu í atvinnustarfsemi einstaklinga eða félaga, sem og auðkenni sveitarfélaga. Þrjár leiðir koma til greina til að tryggja þá vernd.
Vörumerki þjóna því meginhlutverki að gera neytendum kleift að greina vörur og þjónustu eins aðila frá vörum og þjónustu annarra. Þau gegna mikilvægu hlutverki við markaðssetningu, hafa ríkt auglýsingagildi og verða því að hafa til að bera viss sérkenni eða séreiginleika sem gera þeim kleift að gegna því hlutverki. Vörumerki eru framseljanleg og eru oft talin til verðmætustu eigna fyrirtækja.
Félagamerki gegna sambærilegu hlutverki og vörumerki. Þau eru sérstök auðkenni félaga eða samtaka. Um notkun félagamerkis gilda sérstakar reglur þess félags sem um ræðir og samkvæmt þeim er félagsmönnum veittur réttur til notkunar merkis í atvinnustarfsemi. Félagamerki eru þ.a.l. sameiginlegt auðkenni fyrir vörur og/eða þjónustu. Sömu kröfur eru gerðar til þeirra og vörumerkja um sérkenni og aðgreiningarhæfi.
Byggðarmerki eru sérstök auðkenni sveitarfélaga. Um þau gilda nokkuð nákvæmar reglur um útlit, sem byggðar eru á meginreglum skjaldarmerkjafræðanna. Með skráningu byggðarmerkis öðlast sveitarfélag einkarétt á notkun merkisins.



