Byggðamerki
Lög og reglur er varða byggðarmerki
Ákvæði um byggðarmerki er að finna í 5. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.
Sveitarstjórn er heimilt að ákveða byggðarmerki fyrir sveitarfélag. Byggðarmerki skulu skráð hjá Einkaleyfastofunni sem veitir umsóknum viðtöku og kannar skráningarhæfi merkjanna. Umsókn skal fylgja tilskilið gjald. Skráning byggðarmerkis veitir sveitarfélagi einkarétt á notkun þess. Viðskiptaráðherra setur nánari reglur um skráningu byggðarmerkja, m.a. varðandi umsóknir og meðferð þeirra, skilyrði fyrir skráningu, ógildingu, birtingu og gjöld fyrir umsóknir og vottorð úr byggðarmerkjaskrá.
Reglugerð nr. 112/1999 um skráningu byggðarmerkja.
