Um alþjóðlegar hönnunarumsóknir gilda ákvæði alþjóðlegs samnings, Genfarsamnings frá 2. júlí 1999 og viðeigandi ákvæði í hönnunarlögum. Ísland hefur verið aðili að Genfarsamningnum frá árinu 2001, en hann varð virkur 1. apríl 2004. Frá þeim tíma hafa íslenskir lögaðilar eða einstaklingar búsettir hér á landi getað lagt inn umsókn um alþjóðlega skráningu hönnunar. Jafnframt hafa erlendir aðilar getað fengið hönnun sína verndaða hér á landi frá sama tíma í gegnum alþjóðlega skráningarkerfið.
Umsókn um alþjóðlega skráningu er hægt að leggja inn hjá Einkaleyfastofunni eða Alþjóðahugverkastofnuninni (WIPO) í Genf. Umsókn þarf að vera á ensku og á sérstöku eyðublaði. Í umsókn um alþjóðlega skráningu þarf að tilgreina í hvaða ríkjum er óskað skráningar. Hægt er að vernda hönnunina í öllum aðildarríkjum Genfarsamningsins.
Ekki er gert að skilyrði að sótt hafi verið um skráningu hönnunar hér á landi, til þess að hægt sé að sækja um skráningu alþjóðlegrar hönnunar. Grunngjald fyrir alþjóðlega umsókn fer eftir fjölda ríkja sem óskað er skráningar í.
Alþjóðlega skráningarkerfið er einfalt í notkun. Einungis er lögð inn ein umsókn, þar sem fjöldi tilnefndra aðildarríkja kemur fram, á einu tungumáli (ensku) og ein greiðsla er innt af hendi. Á heimasíðu WIPO er að finna reiknivél, þar sem hægt er að reikna út tilskilin gjöld
