Landsbundin umsókn
Leiðbeiningar um frágang umsóknar um skráningu hönnunar:
- Einstaklingar og lögaðilar (fyrirtæki/félög) geta verið umsækjendur. Séu umsækjendur fleiri en einn skal skrá þá alla á umsóknarblaðið.
- Viðmælandi er sá aðili sem Einkaleyfastofan mun hafa samband við á umsóknarferlinu og seinna ef þarf.
- Ef umsækjandi er ekki búsettur hér á landi þarf hann að tilnefna umboðsmann sem er búsettur á EES-svæðinu. Umsækjandi sem er búsettur hér á landi getur einnig haft umboðsmann. Umboðsmaður skal með áritun á umboðið staðfesta að hann taki að sér umboðið, nema hann hafi sérstaka undanþágu til annars.
- Ef umsækjandi er jafnframt hönnuður nægir að haka við "sami og umsækjandi" en ella nafn hönnuðar eða hönnuða. Hönnuður getur verið einn eða fleiri einstaklingar (ekki fyrirtæki eða félag).
- Hér er óskað upplýsinga um hvort hönnunin er skreyting eða ekki. Ef svarið er"já" þarf mynd sem fylgir umsókn að sýna skreytinguna á vöru. Til að sýna skreytingu á vöru eru útlínur vörunnar sýndar sem brotalínur til aðgreiningar.
- Hér skal tilgreint hvort hönnunin óskast vernduð í lit(um). Ef svarið er "já" þarf a.m.k. ein mynd í lit að fylgja umsókn.
- Hér skal tilgreina hver hönnunin er (dæmi: "Tölvuborð á hjólum", "Blómagrind", "Fiskikassi", "Bindingar fyrir gönguskíði"). Þegar sótt er um svonefnda samskráningu, þ.e. sótt er um vernd á fleiri en einni hönnun í sömu umsókn, skal gefa hverjum hlut heiti og númer [dæmi: 1) gaffall, 2) hnífur, 3) skeið]. Þannig mætti sækja um samskráningu á kaffikönnu, sykurkeri og rjómakönnu úr sama "stelli" ef þessar vörur tilheyra sama flokki samkvæmt flokkunarkerfinu sem stuðst er við.
- Hafi umsækjandi á síðustu 6 mánuðum (fyrir innlagningu umsóknar hér á landi) sótt um vernd á hönnuninni utan Íslands getur hann krafist forgangsréttar á grundvelli slíkrar umsóknar.
- Fylgigögn
- Myndir: Með mynd er átt við teikningu eða ljósmynd sem sýnir hönnunina greinilega. Mynd má að hámarki vera í stærðinni A4. Ljósrit af ljósmyndum eru ónothæf. Hver mynd skal aðeins sýna eitt eintak hönnunar frá einu sjónarhorni og þar mega ekki koma fram óviðkomandi hlutir (atriði). Ef ekki er hægt að sýna hönnunina greinilega á einni mynd skal leggja inn fleiri myndir sem sýna hönnunina frá mismunandi sjónarhornum. Á mynd mega koma fram til skýringar orð eins og "upp", "niður" o.þ.h. Myndir (teikningar) mega ekki vera á rúðustrikuðum pappír. Myndir sem fylgja umsókn um samskráningu skulu merktar sama númeri og heiti viðkomandi hönnunar.
- Framsal: Sé umsækjandi annar en hönnuður skal fylgja með umsókninni framsal hönnuðar til umsækjanda.
- Líkan: Stærð líkans má að hámarki vera 4 kg á þyngd og verður það að rúmast innan tenings með 40 cm kantlengd.
- Lýsing: Sjái umsækjandi ástæðu til að lýsa hönnuninni með orðum skal slík lýsing (að hámarki 150 orð) fylgja á sérstöku blaði .
- Tilgreining flokks/flokka: Skráningaryfirvöld skipa hönnun í flokka eftir alþjóðlegu kerfi. Umsækjandi má tilgreina viðeigandi flokk(a) ef honum sýnist svo. Flokkun hefur ekki áhrif á umfang verndar og er aðeins til hagræðingar fyrir skráningaryfirvöld.
- Frestun skráningar: Hámarksfrestur er 6 mánuðir. Með því að tiltaka hér ákveðna dagsetningu er umsækjandi að óska eftir því að skráningu verði frestað og mynd af hönnuninni ekki birt almenningi fyrr en skráning hefur átt sér stað.
- Krafa um rannsókn: Hér skal merkja við ef óskað er rannsóknar á því hvort hér á landi hefur verið skráð eða sótt um skráningu á eins eða svipaðri hönnun og umsóknin tekur til. Sérstakt gjald (skv. gjaldskrá) þarf að greiða fyrir slíka rannsókn.
10. Haka skal við þann reit sem við á varðandi fjölda ára sem verndar er óskað.
