Að sækja um skráningu hönnunar

 

Umsókn um hönnunarvernd skal leggja inn eða senda Einkaleyfastofunni. Fylla þarf út sérstakt umsóknareyðublað um skráningu hönnunar.

Öruggast er að leggja inn umsókn strax og hönnunin er fullmótuð og áður en farið er að leita að fjárfestum eða hugsanlegum samstarfsaðilum vegna framleiðslu. Þó er hægt að leggja inn umsókn allt að 12 mánuðum eftir að hönnun var gerð aðgengileg án þess að skerða nýnæmi hennar (griðtími).

Umsóknareyðublöð eru aðgegnileg á vefsíðu Einkaleyfastofunnar. Umsóknargjald ber að greiða þegar umsókn er lögð inn en umsókn telst ekki móttekin fyrr en greiðsla hefur borist.  Starfsfólk Einkaleyfastofunnar veitir umsækjendum almennar upplýsingar um frágang umsókna.

Umsækjendur sem ekki eru búsettir hérlendis þurfa að hafa umboðsmann sem búsettur er á EES-svæðinu.

Ef umsækjandi er ekki hönnuður þarf að fylgja framsal frá hönnuði til umsækjanda.

Nauðsynlegt er að skýrar myndir fylgi umsókn og ekkert annað sé á myndunum nema það sem óskað er verndar á.  Myndirnar skulu sýna hönnunina greinilega í heild og frá mismunandi sjónarhornum. Mikilvægt er að hafa í huga að verndin ræðst af því sem sést á myndunum. Bæði teikningar og ljósmyndir koma til greina.  Sérstakt gjald er fyrir hverja mynd af hönnun umfram eina. 

Hægt er að sækja um svokallaða samskráningu, en þá er um vernd á fleiri en einni hönnun í sömu umsókn að ræða.  Samskráning á við ef um er að ræða vörur til sömu eða svipaðra nota og ef þær eru flokkaðar í sama flokk samkvæmt Locarno-samningnum um alþjóðlega flokkun hönnunar.

Skráð hönnun gildir í eitt eða fleiri fimm ára tímabil frá umsóknardegi. Hægt er að endurnýja skráninguna til fimm ára í senn þar til 25 ára verndartíma er náð.




Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica