Hönnunarréttur er eignaréttindi sem geta verið verðmæt. Rétt til hönnunar má framselja eða veita öðrum leyfi til að nota(nytjaleyfi). Nytjaleyfishafi má ekki framselja rétt sinn nema um það hafi verið samið. Aðilaskipti, m.a. nytjaleyfi, veðsetning hönnunar og aðför í hönnun skal færa í hönnunarskrá að beiðni viðkomandi aðila. Ef slíkt er fyrirhugað er ótvíræður kostur að eiga skráða hönnun. Skráning hönnunar skapar eiganda traustari grundvöll ef til ágreinings kemur, t.d. til að krefjast lögbanns.
Ef markaðssetja á vöru erlendis með sérstæðri hönnun kemur sér vel að hafa hönnun skráða hér á landi. Þá er líka unnt að nýta sér reglur um forgangsrétt, en í því felst að hægt er að leggja inn umsókn í öðrum ríkjum innan 6 mánaða frá umsóknardegi hér á landi. Hönnunin nýtur þá verndar í viðkomandi ríki frá umsóknardegi hér. Forgangsréttur felur í sér að seinni umsókn telst lögð fram samtímis fyrri umsókn.
