Helstu skilyrði verndar

 

Til þess að hönnun njóti verndar samkvæmt hönnunarlögum þarf hún að uppfylla það skilyrði að vera ný og sérstæð. Hönnun telst ný ef hún hefur ekki verið gerð aðgengileg almenningi fyrir umsóknardag eða forgangsréttardag. Við mat á því hvort hönnun telst ný er miðað við það hvort eins hönnun hafi verið gerð aðgengileg, en ekki hvort að svipuð hönnun fyrirfinnist.

Hönnun telst sérstæð ef hún er ótvírætt frábrugðin heildarmynd annarrar hönnunar, þ.e. hönnunar sem þegar er þekkt. Það er því gerð krafa um að einhvers konar sköpun hafi átt sér stað. Meta á sérstæði hönnunar út frá sjónarhorni upplýsts notanda. Við matið ber einnig að taka tillit til þess svigrúms sem hönnuður hafði við hönnunina. Eftir því sem möguleikarnir til nýrrar hönnunar eru minni, því minni kröfur eru gerðar um sérstæði. Svigrúm til hönnunar á hjólbörðum er t.d. mun minna en þegar um leikföng er að ræða.

Einkaleyfastofan kannar einungis hvort formskilyrði varðandi umsókn séu uppfyllt áður en hönnun er samþykkt til skráningar. Ekki fer fram sérstök könnun á því hvort að hönnun teljist ný og sérstæð. Hins vegar getur Einkaleyfastofan, gegn beiðni og sérstöku gjaldi, rannsakað hvort hönnun brjóti hugsanlega gegn hönnun sem þegar nýtur verndar eða fari í bága við vörumerkjarétt annars aðila.

Svonefndur "griðtími" er undantekning frá fyrrgreindu skilyrði um að hönnun hafi ekki verið gerð aðgengileg fyrir umsóknardag.


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica