Hvað er hönnun?
Frá sjónarhóli hugverkaréttar er með hugtakinu hönnun átt við útlit vöru eða hluta vöru sem ræðst af einstökum þáttum eða skreytingu hennar. Útlit vörunnar ræðst fyrst og fremst af formi hennar þó aðrir þættir geti einnig haft áhrif, svo sem litur og efni.
Hönnun afmarkast af því útliti vöru sem hægt er að nema sjónrænt. Þó svo að vara hafi tæknilega virkni er það aðeins útlit hennar sem fæst verndað með hönnunarvernd. Vörurnar geta verið bæði handunnar og fjöldaframleiddar. Dæmi um nokkrar vörur sem notið geta hönnunarverndar eru húsgögn, fatnaður, umbúðir, vélbúnaður, verkfæri, matvara og skartgripir. Vara þarf ekki að vera í þrívíðu formi til að njóta verndar. Hún getur verið i tvívídd, svo sem skjámynd á tölvu, grafísk tákn og skreyting á annarri vöru, t.d. veggfóðri. Því frumlegri og nýstárlegri sem hönnunin er þeim mun sterkari er verndin.
Hönnun þarf að vera ný og sérstæð þegar umsóknin er lögð inn. Skráning hönnunar veitir eiganda skráningarinnar einkarétt til að hagnýta hana og rétt til að banna öðrum að hagnýta sér viðkomandi hönnun.
Umsókn lögð inn hjá Einkaleyfastofunni gildir á Íslandi, en einnig er hægt að sækja um alþjóðlega skráningu hönnunar (Haag-kerfið) þar sem m.a. er hægt að tilnefna Evrópusambandið.
Hér er að finna almennar upplýsingar um hönnun.
Til þess að skoða bæklinginn þarf forritið Acrobat Reader frá Adobe sem hægt er að fá á heimasíðu Adobe.
