Útlitsvernd
Hönnun afmarkast af útliti vöru sem hægt er að nema sjónrænt. Þó svo að vara hafi tæknilega virkni er það aðeins útlit vörunnar sem telst til hönnunar, ekki tæknileg virkni hennar.
Þær vörur sem notið geta hönnunarverndar geta bæði verið handunnar og fjöldaframleiddar. Sem dæmi um slíkar vörur má nefna húsgögn, fatnað, umbúðir, vélbúnað, verkfæri, matvörur og skartgripir.
Vara þarf ekki að vera í þrívíðu formi til að njóta verndar. Hún getur verið í tvívídd, svo sem skjámynd á tölvu, grafísk tákn og skreyting á annarri vöru, t.d. veggfóðri.


