Fréttir
Evrópskur einkaleyfadómstóll í París
Samkomulag hefur loks náðst í viðræðum ESB-ríkja varðandi staðsetningu Evrópsks einkaleyfadómstóls og þar með hefur síðustu hindrunum verið rutt úr vegi sem stóðu gegn því að svæðisbundnu evrópsku einkaleyfi yrði komið á.
Ákveðið hefur verið að höfuðstöðvar dómstólsins verði í París en nánar má lesa um þetta í fréttatilkynningu Evrópsku einkaleyfastofunnar hér.
