Breyting á lögum um vörumerki nr. 45/1997
Þann 14. júní 2012 tóku gildi lög um breytingu á lögum um vörumerki nr. 45/1997. Breytingarlögin eru nr. 44/2012.
Helstu breytingarnar eru í eftirtöldum ákvæðum: stjórnsýsluleg niðurfelling (25. gr. og 30. gr. a.), endurupptaka (3. mgr. 19. gr. og 4. mgr. 27. gr.), hlutun (24. gr. a), umboðsmannaskylda (35. gr.)
Hluti breytinganna er til kominn vegna aðildar Íslands að Singapúrsamningnum um vörumerkjarétt frá 2006. Aðrar breytingar eru í samræmi við norræna framkvæmd. Enn fremur hafa breytingar verið gerðar í þeim tilgangi að auka á skýrleika einstakra ákvæða í núgildandi lögum.
Vegna gildistöku laganna tók einnig gildi reglugerð nr. 511/2012 sem breytir reglugerð nr. 310/1997 um skráningu vörumerkja o.fl., og reglugerð nr. 524/2012 sem breytir reglugerð um gjöld fyrir einkaleyfi, vörumerki, hönnun o.fl. nr. 916/2001, með síðari breytingum.
