Ný reglugerð um einkaleyfi nr. 477/2012
Í reglugerðina eru tekin upp helstu efnisatriði fyrri gerða. Áhersla var lögð á að auka skýrleika og voru ákvæðin einkum endurskoðuð með hliðsjón af framkvæmd stofnunarinnar við meðferð einkaleyfisumsókna. Leiðbeiningar varðandi uppsetningu umsókna og frágang, sem áður voru í auglýsingu, munu birtast innan skamms á vefsíðu Einkaleyfastofunnar í formi handbókar um einkaleyfisumsóknir.
Sérstök athygli er vakin á því að breyting hefur orðið á nokkrum frestum:
· Frestur til að leggja fram íslenska þýðingu á einkaleyfiskröfum og ágripi landsbundinnar umsóknar ef umsókn var ekki lögð inn á íslensku, er nú 14 mánuðir, talið frá umsóknar- eða forgangsréttardegi, skv. 3. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar.
· Frestur til að leggja fram samþykkta gerð einkaleyfiskrafna, ágrips og texta á teikningum í íslenskri þýðingu fyrir útgáfu landsbundins einkaleyfis er nú 8 mánuðir frá dagsetningu bréfs Einkaleyfastofunnar um að efnislegur grundvöllur sé fyrir því að veita einkaleyfi, sbr. 8. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar.
· Frestur til að takmarka umsókn, nái hún til tveggja eða fleiri uppfinninga sem ekki mynda uppfinningaheild er nú 3 mánuðir frá tilkynningu Einkaleyfastofunnar, sbr. 1. mgr. 30. gr. reglugerðarinnar.
Frá og með gildistöku reglugerðarinnar hættir Einkaleyfastofan að birta upplýsingar um nýjar umsóknir í ELS-tíðindum. Engar upplýsingar verða því veittar öðrum en umsækjanda og/eða umboðsmanni hans um nýjar umsóknir fyrr en þær verða aðgengilegar að 18 mánuðum liðnum frá umsóknar- eða forgangsréttardegi. Hins vegar munu nú verða birtar upplýsinga í ELS-tíðindum varðandi umsóknir sem eru í endurveitingar- og áfrýjunarferli.
Að öðru leyti eru helstu nýmæli þessi:
· Orðskýringar, sbr. 2. gr. reglugerðarinnar.
· Reglur um takmörkun á verndarsviði einkaleyfis, sbr. 39. gr. og varðandi evrópskar umsóknir, 60. gr. reglugerðarinnar.
· Viðbótarvernd, sbr. VIII. kafl a reglugerðarinnar, tímamörk og helstu skilyrði útfærð nánar.
· Breytingar á umsækjanda eða einkaleyfishafa, sbr. IX. kafla reglugerðarinnar, nánar útfært hvaða gögn þarf að leggja fram við skráningu framsals o.fl.
· Endurveiting réttinda, sbr. 97. gr. reglugerðarinnar, formkröfur slíkra beiðna skýrðar nánar.
Einkaleyfastofan veitir allar nánari upplýsingar ef óskað er.
