Fréttir
Óhefðbundin merki skilgreind í Singapore-samningnum um vörumerkjarétt
Samþykkt hefur verið að gera breytingar á Singapore-samningnum um vörumerkjarétt (Singapore Treaty on the Law of Trademarks) og munu óhefðbundin merki verða skilgreind í samningnum en til slíkra merkja teljast m.a. heilmyndir (hologram), hreyfing (motion), litur, staða (position) og hljóðmerki (sound marks).
Mun þetta verða fyrsti alþjóðlegi samningurinn sem vísar með skýrum hætti til þessara tegunda vörumerkja og leggja línurnar hvernig umsóknir um slík merki skulu úr garði gerðar. Samningurinn varðar formsatriði vörumerkjaumsókna og skráninga og því þykir eðlilegt að samningurinn taki til allra tegunda vörumerkja.
