Endurskoðun vörumerkjakerfisins innan ESB
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins hefur lagt í viðamikla könnun á því hvort og þá hvernig sé hægt að breyta og bæta vörumerkjakerfið í Evrópu og hvort breyta þurfi vörumerkjalöggjöfinni. Max Plack Stofnunin í Munchen hefur verið fengin til að hafa umsjón með könnunni og stefnt er á að setja fram tillögur í árslok 2010.
Leitað hefur verið álits hjá ýmsum hagsmunaðilum og öðrum aðilum með sérþekkingu á vörumerkjum, svo sem stofnunum, einstaklingum, OHIM og landsbundnum einkaleyfastofum. Er með þessum álitsumleitunum komið gott tækifæri til að koma að ábendingum um það hverju megi breyta og betur með fara. Könnunin gefur einnig gott færi á að skoða hvernig til hefur tekist síðastliðin 15 ár.
Helstu ábendingarnar sem nú þegar hafa komið fram varða samræmingu (harmonization) og samkvæmni (consistency) milli skrifstofna aðildarríkjanna og við OHIM. Þá hefur verið bent á að endurskoða þyrfti stjórnunarhætti OHIM og ýmis lagaleg álitaefni, svo sem um notkunarskyldu, yfirskrift flokka, óskráð vörumerki, nytjaleyfi og almenna notkun í aðildarríki.
Ef tillögurnar koma til með að fela í sér breytingu á vörumerkjatilskipuninni og vörumerkjareglugerðinni gæti sú undirbúningsvinna hafist strax á næsta ári. Mögulega gætu tillögurnar einnig leitt til breytinga á stjórnunarháttum OHIM sem og framkvæmdinni hjá einkaleyfastofum aðildarríkja ESB.
Sjá nánar hér.
