Madrid-umsóknum hefur fjölgað á þessu ári
Samkvæmt nýjustu tölum frá Alþjóðahugverkastofnuninni (WIPO) fer umsóknum um alþjóðlega skráningu vörumerkja í Madrid-kerfinu fjölgandi eftir að þeim fækkaði um 16% árið 2009. Á tímabilinu 1. janúar til loka apríl á þessu ári hafa 12.928 umsóknir verið lagðar inn en það er um 7,3% aukning frá sama tímabili í fyrra.
Ástæða þess að umsóknum fækkaði um 16% árið 2009 má rekja til þess að fyrirtæki héldu að sér höndum í efnahagshruninu en nýjustu tölur sýna að þau eru að taka við sér á ný.
Þýskaland er stærsti notandi Madrid-kerfisins með 1.552 umsóknir frá janúar fram til apríl. Umsóknum frá Þýskalandi hefur hins vegar fækkað um 3.7% frá því á sama tíma á síðasta ári. Næst á eftir Þýskalandi kemur Evrópusambandið með 1.531 umsókn en það er um 26% aukning frá því í fyrra. Bandaríkin eru svo í þriðja sæti yfir þá sem nota Madrid-kerfið mest en þar hefur orðið 34% fjölgun í umsóknum og á fyrstu mánuðum þessa árs hafa borist 1.337 umsóknir frá Bandaríkjunum.
Stóraaukning hefur verið í umsóknum frá Kína (+38%), Tyrklandi (+54%) og Suður- Kóreu (+100%). Hins vegar hefur umsóknum fækkað mikið frá Benelúx-löndunum (-17%), Spáni og Tékklandi (-30%).
Fækkun umsókna frá einstökum aðildarríkjum Evrópusambandsins má rekja til þess að notendur kerfisins kjósa frekar að byggja umsókn um alþjóðlega skráningu á Evrópusambandsskráningu (CTM) frekar en á landsbundinni skráningu. Þá má einnig geta þess að aukning hefur verið í CTM-skráningum en á fyrstu þremur mánuðum ársins voru lagðar inn 23.893 umsóknir sem er um 22% fjölgun frá því í fyrra.
