Stóra áfrýjunarnefnd Evrópsku einkaleyfastofunnar (EPO) gefur álit sitt á framkvæmd EPO varðandi einkaleyfi á hugbúnaði
Haustið 2008, vísaði forseti EPO álitamáli til stóru áfrýjunarnefndar EPO (Enlarged Board of Appeal), varðandi lagatúlkun við meðhöndlun einkaleyfisumsókna sem fjalla um hugbúnað. Spurningarnar snéru að því að skilgreina hvernig meta ætti einkaleyfishæfi hugbúnaðartengdra uppfinninga út frá Evrópska einkaleyfasamningnum (EPC).
Stóra áfrýjunarnefndin skilaði áliti sínu 12. maí s.l., sjá nánar hér.
Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að skilyrðum fyrir tilvísun forseta EPO á álitamálum til stóru áfrýjunarnefndarinnar hefði ekki verið fullnægt, þar sem ekki liggja fyrir ósamhljóða ákvarðanir áfrýjunarnefnda EPO varðandi þetta tæknisvið, eins og krafist er skv. gr. 112(a) EPC. Samt sem áður inniheldur álitið ítarlega úttekt á framkvæmd EPO og gagnlegar upplýsingar um þetta umdeilda tæknisvið.
