WIPO samningurinn - Lífið byrjar um fertugt!
Þann 26. apríl sl., voru liðin 40 ár frá því að samningurinn um alþjóðahugverkastofnunina (WIPO) tók gildi.
Á þessum 40 árum hefur margt breyst. Fyrirrennari WIPO, BIRPI (Bureaux Internationaux Réunis pour la Protection de la Propriété Intellectuelle) hafði aðeins yfirumsjón með fjórum alþjóðlegum samningum en í dag eru samningarnir sem WIPO hefur umsjón með orðnir 24 talsins og taka þeir til hugverkaréttinda og skráningu þeirra, jafnt á sviði uppfinninga og iðnhönnunar, bókmennta og lista
WIPO hefur margt á prjónunum á þessu merkisári. Meðal annars hefur verið útbúið nýtt auðkenni fyrir stofnunina sem kynnt var þann 26. apríl. Þá mun húsnæði höfuðstöðvanna stækka auk þess sem í ár eru 10 ár síðan að alþjóðahugverkadagurinn var haldinn í fyrsta skipti.
Stofnunin hefur stækkað jafnt og þétt á þessum 40 árum og eru aðildarríkin í dag 184. Ísland gerðist aðili að WIPO þann 13. júní 1986.
WIPO og YouTube
WIPO hefur komið sér upp sinni eigin rás á „Youtube“, WIPO rásin, þar sem hægt er að nálgast ýmis konar myndbönd, svo sem heimildarmyndir og viðtöl við listamenn, uppfinningamenn o.fl. sem segja m.a. frá því hvernig nýsköpun og hugvitssemi hefur haft áhrif á líf þeirra og almennings. Þá er einnig hægt að finna þarna upplýsinga- og kynningarmyndbönd.
Sjá nánar á http://www.wipo.int/
