Fréttir
Handbók uppfinningamannsins á íslensku
Einkaleyfastofan hefur með leyfi Evrópsku einkaleyfastofunnar látið þýða Handbók uppfinningamannsins á íslensku og er hún nú aðgengileg á heimasíðunni okkar. Höfundur bókarinnar er Graham Barker. Handbókin fjallar ekki einungis um hugverkavernd heldur veitir grunnleiðsögn á öllum stigum þess ferlis að þróa vöru út frá uppfinningu. Þannig er m.a. fjallað um samkeppni, markaðsmöguleika, áhættu, nytjaleyfissamninga og fjármögnun.
Það er von okkar að handbókin geti orðið frumkvöðlum sem og öðrum að gagni.
Handbók uppfinningamannsins er að finna hér.
