Ársskýrsla Evrópsku einkaleyfastofunnar fyrir árið 2009 er komin út
Samkvæmt ársskýrslu Evrópsku einkaleyfastofunnar fyrir árið 2009, lögðu íslensk fyrirtæki og einstaklingar inn 47 umsóknir um einkaleyfi, sem er fjölgun frá árinu á undan, þegar þær voru 36 talsins. Séu þessar umsóknartölur reiknaðar sem umsókn á milljón íbúa, er Ísland aðeins yfir meðaltalinu, hvað umsóknarfjölda varðar. Þá voru 10 einkaleyfi veitt á árinu til íslenskra fyrirtækja og einstaklinga sem er fækkun frá árinu á undan, þegar 13 einkaleyfi voru veitt. Ísland lendir nokkuð undir meðaltali, miðað við fjölda einkaleyfa á milljón íbúa. Heildarfjöldi einkaleyfisumsókna til EPO árið 2009 var 134.542, sem er 8,3% fækkun miðað við árið á undan. Þá varð einnig fækkun í útgefnum einkaleyfum, en þau voru 51.969 talsins, sem er 13,1% fækkun. Stærstu einstöku notendur evrópska kerfisins, voru fyrirtækin Philips og Siemens.
Sjá nánar hér.
