Fréttir

Uppfinningamenn Evrópu 2010

Þann 28. apríl sl., var tilkynnt um vinningshafa Uppfinningamanns Evrópu 2010 (European Inventor Award). Athöfnin fór fram í Madrid að viðstöddum hinum konunglegu Felipe prins af Asturias og Letiziu prinsessu, ásamt 300 gestum.  

Veitt voru verðlaun í fjórum flokkum, þ.e. fyrir ævilangt framlag, SMEs/rannsóknir, iðnað,  og loks uppfinningarmann utan Evrópu.

Verðlaununum er ætlað að heiðra hugvitssama einstaklinga og teymi sem með frumkvöðlavinnu sinni veita svör við þeim áskorunum sem við stöndum frammi fyrir á okkar tímum og leggja þannig sitt af mörkum til framfara og hagsældar.  

Í ár voru vinningshafarnir fimm og voru tveir vinningshafar í flokknum uppfinningarmenn utan Evrópu.  

Vinningshafarnir eru:

Wolfgang Krätschmer, Þýskalandi.

Jürgen Pfitzer og Helmut Nägele, Þýskalandi.

Albert Markendorf, Sviss og Raimund Loser, Þýskalandi.

Sanjai Kohli og Steven Chen, Bandaríkjunum.

Ben Wiens og Danny Epps, Kanada.

Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica