Alþjóðlegi hugverkaréttardagur WIPO 26. apríl 2010
Alþjóðlegi hugverkaréttadagur alþjóðlegu hugverkaréttarstofnunarinnar (WIPO) er í dag, 26. apríl og er þetta í tíunda sinn sem hann er haldinn hátíðlegur. Þema og yfirskrift dagsins í ár er Innovation – Linking the World. Aðildarríki WIPO fagna deginum á mismunandi vegu og í ár tók Einkaleyfastofan forskot á sæluna og hélt málstofu í Bókasal Þjóðmenningarhúsinu á síðasta degi vetrar.

Á málstofunni fluttu eftirfarandi einstaklingar erindi í tengslum við þema dagsins:
Hilmar Janusson, framkvæmdastjóri rannsóknar- og þróunarsviðs Össurar, Einar Stefánsson, prófessor og yfirlæknir, HÍ og LSH, Helga Valfells, framkvæmdarstjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, Vilborg Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Mentors, Einar Mäntylä, yfirmaður hugverkasviðs Orfs Líftækni og Stefán Stefánsson, deildarstjóri einkaleyfadeildar Actavis. Fundarstjóri var Ásdís Magnúsdóttir frá Árnason Faktor.
Að fyrirlestrunum loknum gafst gestum tækifæri á að ræða við fyrirlesarana í pallborðsumræðum og þiggja að lokum léttar veitingar.


Einkaleyfastofan hefur undanfarin ár beðið aðila með þekkingu í hugverkarétti að skrifa erindi í tilefni af hugverkadeginum. Í ár er það Grétar Ingi Grétarsson aðstoðarforstjóri Nordic Patetnt Institude (NPI) sem skrifar greinina „Hugverk í alþjóðlegu umhverfi“ sem er að finna á blaðsíðu 16 í Morgunblaðinu í dag, 26. apríl.
Nánari upplýsingar um alþjóðlega hugverkaréttardag WIPO má finna með því að smella á tenglana hér fyrir neðan.
http://www.wipo.int/pressroom/en/articles/2010/article_0010.html
