Fréttir

Rafrænar alþjóðlegar umsóknir

Frá og með 1. mars móttekur Einkaleyfastofan umsóknir um evrópsk einkaleyfi (EP/IS umsókn) og alþjóðlegar umsóknir (PCT/IS umsókn) bæði á rafrænu- og pappírsformi. Landsbundar einkaleyfisumsóknir og yfirfærðar PCT umsóknir er enn um sinn einungis hægt að móttaka á pappírsformi. 

Notast er við hugbúnaðinn Online Filing frá Evrópsku einkaleyfastofunni (EPO) við innlögn rafrænna umsókna. Umsækjendur þurfa að hafa rafræn skilríki til að leggja inn rafrænar umsóknir og til undirritunar. Hægt er að sækja um rafrænt skilríki (snjallkort) hjá Auðkenni,  Evrópsku einkaleyfastofunni (EPO) og Alþjóðahugverkastofnunni (WIPO) og eru skilríkin viðurkennd af Einkaleyfastofunni.  Það ber þó að athuga að skilríkin frá WIPO eru takmarkaðri en hin skilríkin og því einungis hægt að leggja inn alþjóðlega PCT umsókn með slíkum skilríkjum. 

Kostir rafræna umsókna:

  • Án viðbótarkostnaðar (ef notast er við rafræn skilríki frá EPO eða WIPO)
  • Sparar tíma og peninga
  • Staðfesting berst strax með númeri og umsóknardagsetningu
  • Öruggur sendingarmáti
  • Afsláttur á umsóknargjöldum

Smellið hér fyrir nánari upplýsingar um alþjóðlegar rafrænar umsóknir


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica