Nýsamþykkt lög um breytingu á vörumerkjalögum
Alþingi hefur samþykkt ný lög um breytingu á lögum nr. 45/1997 um vörumerki, með síðari breytingum. Lögin fela í sér breytingu á ákvæði 2. mgr. 6. gr. vörumerkjalaga þannig að tæming réttinda eða réttindaþurrð (e. exhaustion of rights, d. konsumption) verður nú bundin við Evrópska efnahagssvæðið í stað alþjóðlegrar tæmingar. Hafi eigandi vörumerkis markaðssett vöru eða þjónustu sem nýtur vörumerkjaréttar eða heimilað slíkt innan Evrópska efnahagssvæðisins getur hann nú ekki síðar hindrað notkun, sölu, leigu, innflutning, útflutning eða annars konar dreifingu vörunnar eða þjónustunnar á því svæði. Lagabreytingin er til komin vegna innleiðingar á 1. mgr. 7. gr. fyrstu tilskipunar ráðsins 89/104/EBE frá 21. desember 1988 um samræmingu á lögum aðildarríkja um vörumerki, sbr. nú tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/95/EB frá 22. október 2008 um samræmingu á lögum aðildarríkja um vörumerki.
Frumvarpið má lesa hér: http://www.althingi.is/altext/138/s/0046.html
