Fréttir

Ályktun ráðs Evrópusambandsins frá 4. desember 2009 um bætt einkaleyfakerfi innan Evrópu

Ráð Evrópusambandsins sendi fá sér ályktun 4. desember s.l. um að gera samning um bætt einkaleyfakerfi innan Evrópu sem mun m.a. fela í sér stofnun sérstaks Evrópu og Evrópusambands dómstóls (European and EU Patents Court) og efla samstarf á milli Evrópsku einkaleyfastofunnar og einkaleyfaskrifstofa í aðildarríkjum Evrópusambandsins.

Tilgangur þessa samstarfs er að styrkja nýsköpun með því að auka skilvirkni í einkaleyfaferlinu, m.a. með því að koma í veg fyrir að margar stofnanir séu að rannsaka sömu uppfinninguna og stytta meðhöndlunartíma umsókna. Uppfinningar munu því fara fyrr á markað og kostnaður lækka fyrir umsækjendur. Ennfremur mun þetta leiða til þess að málaferli vegna einkaleyfamála verði aðgengilegri, ódýari og hugsanlega fyrirsjáanlegri.

Sjá nánari tilkynningu frá ráði Evrópusambandsins hér.


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica