Hugmyndasamkeppnin “Uppúr skúffunum”
Hugmyndasamkeppnin “Uppúr skúffunum” er samstarfsverkefni Rannsóknaþjónustu Háskóla Íslands, Tæknigarðs, Einkaleyfastofu og Arnason|Faktor. Hlutverk keppninnar er að lyfta fram hugmyndum og uppfinningum innan Háskólans og Landsspítala – háskólasjúkrahúss og veita þeim viðurkenningu með verðlaunafé.
Verðlaunaafhendingin fór að þessu sinni fram 18. nóvember á Háskólatorgi, á Nýsköpunarmessu sem markar endapunkt á Athafnaviku háskólans. Að þessu sinni voru veitt fern verðlaun. 1. verðlaun hlaut verkefnið “Burðarvaki”, sem er búnaður hannaður til þess að fylgjast með burði kúa og koma þannig í veg fyrir kálfadauða, en Hafrún Hauksdóttir, verkfræðingur hjá Merkjafræðistofu HÍ og Magnús Örn Úlfarsson standa að þessu verkefni. 2. verðlaun hlaut Skólapúlsinn, sem er vefkerfi til þess að mæla virkni og líðan nemenda í skólum en að þessu hafa unnið Almar Miðvík Halldórsson og Kristján Ketill Stefánsson, sem báðir stunda doktorsnám í menntunarfræði. 3. verðlaun hlaut verkefnið “Flæðigildra”, sem miðar að því að hreinsa nælonþræði úr kítíni sem unnið er úr rækjuskel. Þeir sem unnu að þessu verkefni, eru: Stefán Hjalti Garðarsson, Darri Kristmundsson, Hagalín Á. Guðmundsson og Birkir Veigarsson, allir nemar í verkfræði HÍ, en umsjónarmenn voru Rúnar Unnþórsson, framkvæmastjóri Orku og Tækniskólans á Keili og Kolbeinn Aðalsteinsson, gæðastjóri hjá Primex. Þá voru í fyrsta skipti veitt sérstök heiðursverðlaun en þau hlaut Páll Theódórsson eðlisfræðingur. Hann hefur unnið lengi og ötullega að þróun tækni sem nefnd er ”ICELS”, en það er vökvasindurkerfi þróað til þess að mæla veik geislavirk sýni. Með þessari tækni hillir nú í möguleikann á því að tímasetja landnám Íslands í hverjum landshluta með meiri nákvæmni en unnt hefur verið áður, og gjörbylta þannig hugmyndum okkar um landnámið.
