Fréttir

Samstarfssamningur milli OHIM og WIPO varðandi flokkun vöru og þjónustu

Þann 3. desember sl. undirrituðu Wubbo de Boer, forseti OHIM og Francis Gurry, forstjóri WIPO, samstarfssamning sem tekur til flokkunar vöru og þjónustu.

Í samstarfinu felst m.a. að OHIM mun veita aðgang að gagnagrunni sínum sem hefur að geyma hugtök og orðasambönd sem notuð eru við flokkun vöru og þjónustu. Gagnagrunnurinn kemur til með að geyma um 100.000 hugtök og orðasambönd sem þýdd verða  á 22 tungumál.

Með hliðsjón af mikilvægi þess að vörur og þjónusta séu rétt flokkuð, stefna stofnanirnar að því að sammælast um lista vöru og þjónustu sem þýddur verður á eins mörg tungumál og mögulegt er.

Samningurinn er talinn mikilvægur áfangi í því markmiði að koma á samræmdu kerfi hugverkaréttinda.

 

Smellið hér til að sjá fréttina á vef OHIM og hér til að sjá hana á vef WIPO


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica