Fréttir

Nýir stjórnendur Nordic Patent Institude

NPI (Nordic Patent Institude) sem Ísland, Noregur og Danmörk stofnuðu árið 2007 hefur ráðið tvo starfsmenn. Lone Hartung Nielsen og Grétar Ingi Grétarsson hafa verið ráðin forstjóri og aðstoðarforstjóri.

npi_signering2009Þau munu taka við stjórninni af Niels Ravn sem verið hefur forstjóri NPI frá upphafi stofnunarinnar, en hann hefur óskað eftir lausn frá störfum frá og með 1. febrúar 2010.

Lone Hartung Nielsen sem verður forstjóri NPI er verkfræðingur að mennt og hefur starfað á dönsku einkaleyfastofunni þar sem hún hefur síðan 1990 byggt upp og leitt sölu- og markaðsstarf stofunnar. Grétar sem verður aðstoðarforstjóri NPI er lögfræðingur að mennt og starfaði á Einkaleyfastofunni frá árinu 2002 til loka mars 2008 þar sem hann meðal annars tók þátt í stofnun NPI.

Lone og Grétar munu skipta með sé stjórnun NPI á þann veg að Lone verður meira í ytra starfinu við að kynna NPI og afla nýrra viðskiptavina á meðan Grétar mun einbeita sér að innra starfinu og kjarnastarfseminni sem fram fer í Danmörku.

 

Einkaleyfastofan býður þau Lone og Grétar velkomin til starfa.


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica