Rannsóknir í þágu lítilla og meðalstórra fyrirtækja - umsóknarfrestur 3. des.
Næsti umsóknarfrestur í áætlun Evrópusambandsins um rannsóknir í þágu lítilla og meðalstórra fyrirtækja (Research for the Benefit of SMEs), sem áður nefndist CRAFT, er 3. desember 2009. Að því tilefni er vakin athygli á vefsíðu þar sem nálgast má fjölda samstarfsleita í áætlunina, en nýjar bætast nú við nánast á hverjum degi. Umrædda vefsíðu má finna á slóðinni http://www.ncp-sme.net/Countries/ES/PS-SME-ES-346. Íslensk fyrirtæki og stofnanir eru jafnframt hvött til að birta eigin samstarfsleitir á síðunni ef þau hafa hugmyndir að umsóknum í áætlunina.
Rannsóknir í þágu lítilla og meðalstórra fyrirtækja byggja á samstarfi fyrirtækja og rannsóknarstofnana þar sem fyrirtækin fela stofnunum tiltekin rannsóknarverkefni. Evrópusambandið veitir fyrirtækjum styrk til kaupa á slíkum þjónusturannsóknum en verkefni geta verið á nær öllum rannsóknarsviðum.
Frekari upplýsingar um áætlunina veita Þorsteinn Brynjar Björnsson (thorsteinn@rannis.is) hjá Rannís og Amanda Garner (amanda@nmi.is) hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Einnig bendum við á vefsíðu Rannís á slóðinni http://www.rannis.is/7ra/undirstodur/rannsoknir-i-thagu-litilla-og-medalstorra-fyrirtaekja
