Fréttir

Græn einkaleyfi - EPO með fulltrúa á loftslagsráðstefnunni

EPO hefur fengið áheyrnarstöðu á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um rammasamning samtakanna um loftslagsbreytingar (UNFCCC) í Kaupmannahöfn þann 7.-18. desember 2009.

Alls munu 192 lönd taka þátt í samningaviðræðunum sem vonast er til að muni hafa í för með sér alþjóðlegan samning um loftslag fyrir tímabilið fram til 2012.

Á hliðarráðstefnu ætla EPO, Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna (UNEP) og Alþjóðamiðstöð um viðskipti og sjálfbæra þróun (ICTSD) að leggja fram bráðabirgðaniðurstöður úr könnun á grænum einkaleyfum sem stofnanirnar unnu að saman.

Könnun á grænum einkaleyfum

 Könnunin var sett af stað í apríl síðastliðnum og í henni er skoðuð staðan í tækni og einkaleyfum og rannsökuð framkvæmd á leyfisveitingum í tilteknum greinum umhverfisvænnar tækni. Tilgangurinn er að auka skilning á hlutverki einkaleyfa í tengslum við framsal, aðgang og nýtingu á umhverfisvænni tækni.


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica