Fréttir
NKG 2009

Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda

Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda er árlegur viðburður en um er að ræða keppni í nýsköpun fyrir alla aldurshópa grunnskólans. Tilgangur keppninnar er að virkja sköpunarkraft barna og unglinga í landinu. Vitinn-verkefnastofa í samstarfi við Menntamálaráðuneytið sér um framkvæmd keppninnar en ýmsir styrkja keppnina, m.a. Háskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík.  Þá styrkir Einkaleyfastofan keppnina og situr í dómnefnd. 

Þann 19. september sl. veitti Herra Ólafur Ragnar Grímsson, verndari keppninnar vinningshöfum verðlaun við hátíðlega athöfn í Grafarvogskirkju.  Verðlaunahafar voru 15 talsins í ár, og meðal hugmynda sem hlutu verðlaun voru ljósnet, sokkaíklæðari og mjólkurtankur. Fjöldi barna tók þátt í keppninni, um 2700 börn úr 60 grunnskólum.  Vinningshafar voru valdir úr 44 hugmyndum sem unnið var með í vinnusmiðju þar sem hugmyndasmiðirnir útfærðu hugmyndirnar með hjálp leiðbeinenda.  Þá var þeim skólum, þaðan sem flestar hugmyndir komu, veittar viðurkenningar, en gullviðurkenningu hlaut Hofsstaðaskóli í Garðabæ.  Aðrir skólar sem hlutu viðurkenningu voru Brúarásskóli í Fljótdalshéraði og Þjórsárskóli í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica