Fjórir sóttu um stöðu forstóra EPO
Fjórir umsækjendur uppfylltu hæfnisskilyrði vegna stöðu forstjóra EPO en frestur til að leggja inn umsókn rann út þann 15. september sl. Skipunartími núverandi forstjóra, Alison Brimelow, rennur út þann 30. júní 2010 og mun nýr forstjóri taka við til næstu fimm ára þann 1. júlí 2010.
Á fundi framkvæmdaráðsins í október nk. munu umsækjendurnir fjórir gera grein fyrir umsóknum sínum áður en gengið verður til kosninga en þrjá fjórðu hluta atkvæða þarf til að hljóta kosningu samkvæmt 35. grein Evrópska einkaleyfasamningsins.
Umsækjendurnir eru eftirfarandi:
Jesper KONGSTAD, forstjóri dönsku einkaleyfastofunnar, PVS
Susanne ǺS SIVBORG, forstjóri sænsku einkaleyfastofunnar, PRV
Roland GROSSENBACHER, forstjóri svissnesku einkaleyfastofunnar
Benoît BATTISTELLI, forstjóri frönsku einkaleyfastofunnar, INPI
