Fréttir

Átak til atvinnusköpunar - styrkir

Iðnaðarráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki úr verkefninu Átaki til atvinnusköpunar. Verkefnið veitir styrki til nýsköpunarverkefna og markaðsaðgerða starfandi frumkvöðla- og nýsköpunarfyrirtækja.

Markmið verkefnisins er að:

  • Styðja við þróun nýsköpunarhugmynda á fyrri stigum sem hlotið gætu frekari fjármögnun sjóða og fjárfesta.
  • Styðja við undirbúning og framkvæmd markaðsaðgerða í frumkvöðla- og sprotafyrirtækjum.

 

Styrkir geta að hámarki numið 50% af heildarkostnaði verkefnisins.

Umsóknarfrestur er til 29. september nk.

Sjá nánar á vefsíðu Nýsköpunarmiðstöðvar.


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica