Fréttir

Uppúr skúffunum - umsóknarfrestur til 30. október 2009

Samkeppnin Uppúr skúffunum verður haldin í ellefta sinn árið 2009. Samkeppnin er liður í viðleitni Háskóla Íslands til að hagnýta þekkingu sem til verður innan veggja skólans. Allir nemendur og kennarar Háskóla Íslands og Landsspítala-háskólasjúkrahúss eða aðrir þeir sem tengjast H.Í. hafa rétt til þátttöku. Umsóknarfrestur  Uppúr skúffunum 2009 rennur út föstudaginnn 30. október. Hægt að nálgast einföld eyðublöð hér, eða með því að hafa samband við Viðar Helgason verkefnisstjóra í síma 525 4900 eða netfang vidarh@hi.is.

,,Uppúr Skúffunum” hefur árlega laðað fram fjölmargar hugmyndir sem bera vott um grósku og nýsköpun  innan háskólasamfélagsins og hjá fyrirtækjum tengdum háskólanum. Þrjú verkefni hafa verið verðlaunuð ár hvert og nemur verðlaunafé samtals 1 milljón króna. Vinningstillögur  samkeppninnar frá upphafi má skoða með því að virkja þessa stiklu.

Fjöldi sprotafyrirtækja hefur verið stofnaður á þeim rúma áratug sem samkeppnin hefur  verið við lýði. Auk þess hafa aðrar hugmyndir  verið hagnýttar með öðrum hætti. Verkefnin hafa komið frá nánast öllum deildum Háskólans og má þar nefna lækna-, verkfræði-, félagsvísinda-, hugvísinda og viðskipta – og hagfræðideild.