Fréttir

Samstarfssamningur undirritaður við Evrópsku einkaleyfastofuna

Einkaleyfastofan og Evrópska einkaleyfastofan (EPO) hafa undirritað samning um samstarf (National Action Plan) sem m.a. miðar að því að efla umræðuvettvang um einkaleyfi og fræðslu til starfsmanna, umsækjenda, umboðsmanna og annarra hagsmunaaðila.  Jafnframt að styðja Einkaleyfastofuna í innleiðingu á sérhæfðum einkaleyfahugbúnaði sem EPO hefur þróað fyrir aðildarríkin. Í samningum eru listuð upp fyrirhuguð verkefni Einkaleyfastofunnar árin 2009 og 2010, ásamt markmiðum þeirra og áætluðum kostnaði.

Samningurinn felur í sér fjárhagslegan og faglegan stuðning EPO en EPO greiðir 25% af útlögðum kostnaði Einkaleyfastofunnar í tengslum við hvert verkefni. Jafnframt fær Einkaleyfastofan aðgang að starfsfólki EPO til tiltekinna fræðslu- og kynningarstarfa.

Einkaleyfastofan fagnar þessum áfanga og er Ísland nú komið í hópa þeirra 17 ríkja sem undirritað hafa slíkan samning við EPO.


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica