Fréttir
Auglýst eftir umsóknum í undiráætlanir 7. Rannsóknaráætlunar ESB
Auglýst hefur verið eftir umsóknum í eftirfarandi undiráætlanir 7. Rannsóknaáætlunar ESB: Heilbrigðisvísindi; matvæli, landbúnaður, sjávarútvegur og líftækni; upplýsinga- og samskiptatækni; örtækni, efnistækni og ný framleiðslutækni; orka; umhverfi; samgöngur; félags-, hag- og hugvísindi; öryggi; geimtækni; hugmyndir; innviðir; rannsóknir í þágu lítilla og meðalstórra fyrirtækja; þekkingarsvæði; færni vaxandi svæða til rannsókna og þróunar; vísindi í samfélaginu; alþjóðlegt samstarf.Umsóknarfrestir eru í lok árs 2009 og byrjun árs 2010. Frekari upplýsingar um einstaka fresti er að finna hér.
