“Grænar uppfinningar” - Upplýsingar fyrir ráðstefnu um loftslagsbreytingar
EPO stendur um þessar mundir fyrir könnun á nytjaleyfum á sviði umhverfisvænnar tækni, í samvinnu við Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna (UNEP) og Alþjóðamiðstöð um viðskipti og sjálfbæra þróun (ICTSD).
Könnunin er þáttur í sameiginlegu verkefni um einkaleyfi og umhverfisvæna tækni sem hefur það að markmiði að auka skilning á hlutverki einkaleyfa við dreifingu umhverfisvænnar tækni, aðgang og þróun hennar. Byrjað er á orkuframleiðslugeiranum.
Könnunin var sett af stað núna í vikunni á heimasíðu EPO og er ætlunin að safna upplýsingum sem munu nýtast í tengslum við ráðstefnuna um rammasamning Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar í Kaupmannahöfn í desember næstkomandi.
Sjá nánar hér.
