Fréttir
Endurnýjun elsta vörumerkisins
Elsta vörumerkið sem enn er í gildi og skráð í vörumerkjaskrána hefur nú verið endurnýjað. Merkið var skráð á Íslandi 30. júlí 1909 og er skráningin því 100 ára um þessar mundir. Merkið hefur skráningarnúmerið 9/1909 og er skráð í eigu Brandbrew S.A., 5, Parc d'Activité Syrdall, 5365 Munsbach, Lúxemborg.
Til gamans má nefna að í vörumerkjaskránni eru sjö merki frá tímabilinu 1910-1920 skráð í gildi og þrjátíu frá tímabilinu 1920-1930. Í lok ársins 2008 voru um 50 þúsund vörumerkjaskráningar í gildi á Íslandi.
