Fréttir

Vegvísir til að fyrirbyggja dreifingu falsaðra lyfja

Danska Einkaleyfastofan tekur þátt í verkefni um falsaðar lækningavörur ásamt dönsku Lyfjastofnuninni. Um er að ræða verkefni sem er á vegum tengslanets ráðuneytanna um eftirlíkingar og falsanir. Vinnuhópurinn hefur sett saman Vegvísi sem hugsaður er sem hjálp til fyrirtækja í lyfjaiðnaði og til apóteka við að fyrirbyggja að falsaðar lækningavörur endi í hinni löglegu birgðakeðju. Vegvísinum er beint til allra dreifingarfyrirtækja í lyfjaiðnaðinum, þ.e. til framleiðenda, þeirra sem vinna í samhliða innflutningi og til heild- og smásala með lyf og lækningavörur, þ.m.t. apóteka og sjúkrahúsapóteka.   

Markmið þessarar þéttu samvinnu er að góður árangur náist í að fyrirbyggja að falsaðar lækningarvörur komist inn í löglega dreifingu lækningarvara í Danmörku.    


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica